KVENNABLAÐIÐ

Naomi Watts situr fyrir í nýjustu herferð L’Oreal

Margar af þekktustu leikkonum og fyrirsætum heims eru andlit snyrtivörumerkisins L’Oreal, en ein af þeim er ástralska leikkonan Naomi Watts. Naomi situr fyrir í nýjustu herferð merkisins og kynnir þar nýja húðvörulínu; Revitalift Filler sem eru húðvörur sem eru afar ríkar af innihaldsefni sem heitir Hyaluronic Acid. 

maxresdefault (1) (1)

Revitalift Filler línan samanstendur af dagkremi og serum, en virkni þeirra dregur úr einkennum öldrunar andlitshúðar og vinnur á móti rakatapi, myndun örfínna lína, ójafnri áferð og skort af ljóma. Hyaluronic Acid er efni sem er í húðinni okkar fyrir og er í raun efni sem gefur húðinni náttúrulega fyllingu. 

loreal-paris-revitalift-skin-changes-featuring-naomi-watts-large-9

Með tímanum hægir á framleiðslu húðarinnar á þessu efni sem gerir að verkum að húðin tapar fyllingu og raka, sem merkir að teygjanleiki húðarinnar minnkar. Hyaluorinc Acid bindur rakann í húðinni og tryggir endingu rakans. Með því að nota Revitalift Filler vörurnar eykst náttúruleg framleiðsla húðarinnar á efninu. Markmið Revitalift Filler línunnar er að færa húðinni þessa fyllingu á ný, gefa henni fallegt yfirbragð og jafna áferð.

Revitalift Filler Serum er borið á hreina húð kvölds og morgna, en umbúðirnar eru í formi pumpu, sem deilir hárréttu magni fyrir einn skammt af serum í einu. Þið getið bæði borið serum yfir allt andlitið eða bara á þau svæði sem þið viljið sérstaklega beina spjótum ykkar að og ekki gleyma hálsinum.

caee680c3232446f2b34563bd2558f42

Virkni serum-sins kemur í ljós strax en eftir fjóra tíma þá hefur húðin samstundis fengið aukinn raka, efsta lag húðarinnar hefur þést og þið finnið sannarlega fyrir virkni vörunnar. Eftir fjögurra vikna notkun hafa línur sjáanlega minnkað, húðin er stinnari, áferðarfallegri og hefur öðlast meiri fyllingu.

385feb2f95a488713282ce36264f6a7c

Dagkremið er svo borið á húðina á hverjum morgni á eftir serum-inu. Munið að leyfa smá tíma að líða á milli varanna tveggja, svo virkni þeirra nýtist sem best. Dreifið kreminu jafnt yfir allt andlitið og munið að bera líka yfir hálsinn. Fjórum tímum eftir að þið hafið borið kremið á húðina hefur húðin öðlast góðan raka og þéttari áferð. Eftir fjórar vikur eru línur minna sjáanlegar og húðin hefur öðlast mun meiri fyllingu en áður. Því eru andlitsdrættir skýrari og húðin verður almennt á litið áferðarfallegri og með meiri ljóma en áður.

maxresdefault (3)

 

Eins og fyrr segir er það Naomi Watts sem situr fyrir í auglýsingum fyrir þessar glæsilegu vörur og hún lítur svo sannarlega vel út.

Glæsilegar vörur fyrir konur sem vilja góðar vörur sem gefa húðinni kærkomna rakamikla fyllingu og fallegri áferð fyrir húðina.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!