KVENNABLAÐIÐ

L A U G A R D A G S: Cointreau og Vodka Appelsínu-skvetta með dass af lime

Nú hlýtur sumarið að vera komið. Við erum allavega í stuði fyrir sumarlegan og skvísulegan kokteil á pallinum, sumarbústaðinum eða í partýinu.
Og hvað er sumarlegra en appelsínugulur ferskur drykkur? Þessi kokteill er ómótstæðilegur fyrir þá sem elska appelsínubragð, því hér erum við að tala um sítrónu-Vodka, Cointreau, appelsínudjús og Lime:

Uppskrift:

60 ml af Absolut sítrónu vodka
30 ml af Cointreau
Kreista 1/2 lime út í
1 skvetta af appelsínusafa (magn fer eiginlega eftir smekk)
Sykur til skrauts
Appelsínusneið til skrauts

Aðferð:
Helltu áfenginu og öðrum innihaldsefnum í hristara eða stórt glas ásamt klaka og hristu ákaflega. Settu sykurrönd á glas og klaka og helltu svo drykknum yfir klakann. Skreyttu með appelsínusneið.

Njóttu! 

Mynd og uppskrift af www.delish.com

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!