KVENNABLAÐIÐ

Ferskur kokteill með rósmarín og granateplum

Auglýsing

Þessi er einning ljúffengur óáfengur en þá einfaldlega sleppir maður því að setja gin í hann.

Hráefni fyrir tvo drykki:

50ml Gin
50ml granateplasafi
25ml sykur-sýróp (sýður saman 50/50 vatn og sykur þar til úr verður sýróp og kælir það síðan)
25ml ferskur safi úr sítrónum
Sódavatn
klakar
Granateplafræ og rósmarín stilkar til skrauts

Aðferð:

1. Setjið gin, granateplasafa, sítrónusafa og sykursýróp í kokteilhristara ásamt klökum og hristið vel.

2. Setjið klaka í tvö glös og síjið drykkinn í glösin. Fyllið upp með sódavatni og toppið með granateplafræjum og rósmarín stilkum.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!