KVENNABLAÐIÐ

Myndaði móður sína í HEILT ÁR án hennar vitundar og gerði úr gullfallega EINKAMÁLAAUGLÝSINGU!

Fátt er erfiðara en að feta sig að nýju á stefnumótamarkaðinum þegar maður stendur á fimmtugu. Reglurnar hafa breyst á undanförnum áratugum, orðfarið er annað og svo er fólk orðið eldra í hettunni.

Að finna hentugan maka á fimmtugsaldri getur verið eins og að leita að nál í heystakki og því er enn fallegra að fylgjast með því sem elskandi sonur gerði fyrir móður sína; hann filmaði hana á laun í heilt ár og setti saman einkamálaauglýsingu sem hann deildi á YouTube um leið og hann óskaði þess eins að allir tækju þátt í deilingunum svo móður hans yrði gert kleift að finna ástina að nýju.

Myndbrotið er alveg dásamlegt og sýnir ekki bara hversu mikla umhyggju sonur þessarar lánsömu móður er, heldur einnig innihaldsríku, gefandi og skemmtilegu lífi fimmtugar konur í raun lifa!

Við látum ekki okkar eftir liggja, heldur fylgjum þeirri einföldu beiðni sem sonur hennar Evu, sem er fimmtug að aldri og býr í Noregi setti fram á YouTube – við deilum eins og vindurinn í þeirri von að hún megi finna sinn eigin Adam!

Deilum þessari dásemd í nafni ástarinnar!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!