KVENNABLAÐIÐ

Með þessari smoky augnförðun tælir þú án þess að reyna.

Hann á ekki eftir að geta slitið augun af þér.

Ertu á leið á flott stefnumót með þínum heittelskaða? Þú lítur alltaf æðislega út með náttúrulega förðun, en ef þú ert í stuði til að prófa eitthvað seiðandi, prófaðu hlutlausar varir og áberandi smoky augu. Förðunararstílistinn Kristen Gallegos sýnir þér akkúrat hvernig á að gera ólívulituð smokey augu. Neðst í greininni er hlekkur á upprunalegu greinina þar sem nákvæm nöfn hverrar vöru er að finna.

1. Settu smá af kremuðum augnskugga yfir augnlokin. Þegar þú hefur sett á þig farða og kinnalit, settu þá glitrandi kremaðann augnskugga frá augnháralínunni að byrjun augnloksins. Hér notaði módelið Jessica gullfallegan ólífugrænan skugga sem dregur fullkomlega fram brúnu augun hennar.

2. Skapaðu dýpt í augnlokadældinni. Skapaðu „smokey effect“ með því að nota meðal brúnan púður augnskuggaliti í augnlokadældina með mjúkum bursta. Til að auka dramatíkina skaltu nota brúnan skugga meðfram neðri augnhárunum með skáskornum bursta.

3. Búðu til línu meðfram efri augnhárunum með svörtum augnskugga. Notaðu skáskorin bursta á pressaðan svartan augnskugga og svo eftir augnháralínunni.

4. Settu létt gullið glimmer á miðju augnlokana til að fá smá lýsingu. Rétt snertu gylltu glimmeri á fingurinn og settu á miðju augnlokanna. Ef þú vilt geturðu bætt meiri glans í mixið með því að dýfa ljósbleikum kremaugnskugga í innra horn augnanna.

Að lokum, settu maskara, renndu á með rósbleikum varalit, og þú ert tilbúin fyrir stefnumótið!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!