KVENNABLAÐIÐ

Myndir þú treysta bestu vinkonu þinni til að farða þig fyrir fyrsta stefnumótið?

Hvernig myndir þú farða bestu vinkonu þína ef leiðin lægi á stefnumót það kvöldið? Myndir þú velja rauðan varalit og kattarlínu, eða látlausan augnskugga og sólarpúður? Myndir þú treysta bestu vinkonu þinni til að höndla förðunarpenslana án þess að gægjast, stuttu áður en þú smeygðir þér í háu hælana og trítlaðir út á vit ævintýranna?

Það var einmitt það sem þessar fjórar skemmtilegu konur gerðu og sýndu um leið, svo ekki verður um villst, að flestar erum við fastar í viðjum vanans. Að betur sjá augu en augu og að konur eru sannarlega konum bestar:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!