KVENNABLAÐIÐ

Dularfulla stúlkan sem Bieber leitaði að er fundin

Justin Bieber póstaði mynd af fallegri stúlku til tæplega 50 milljóna aðdáenda sinna á Instagram og sagði:  ‘OMG who is this!’

 

bb4

 

Allt ætlaði um koll að keyra í leitinni að stúlkunni en Bieber kom henni á kortið á mánudaginn var.

bb5

 

Komið hefur í ljós að um 17 ára spænska stúlku er að ræða – Cindy Kimberley, en hún býr á Costa Blanca sem er rétt hjá Benidorm á Spáni. Þar starfar hún sem barnfóstra og rukkar um fimmhundruð kall á tímann.

 

bb3

 

Leitin að „wolfiecindy“ eins og hún kallar sig á Instagram fór fjöllum hærra þar sem erfitt var að finna stúlkuna sem falin var bak við önnur nöfn á samfélagsmiðlunum.

bb2

 

Vissulega um gullfallega stúlku að ræða, en athyglin sem hún fékk óumbeðna frá poppgoðinu varð þess valdandi að hún sendi út yfirlýsingu á Instagram þar sem hún sagði að þetta væri of mikið fyrir hana.

bb1

 

Þúsundir reikninga í hennar nafni hafa poppað upp á Netinu – enda eflaust margir sem myndu kjósa athyglina frá Justin Bieber…

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!