KVENNABLAÐIÐ

Stjörnuspá Váhildar fyrstu vikuna í desember

Sjóðheit spá Váhildar sem ber að taka alvarlega! Váhildur mun nú spá fyrir Íslendingum á næstu vikum og mánuðum. Hún segir hlutina umbúðalaust…ekki láta þér bregða…

sm

 

Steingeitin 22. des – 21. jan

Frami og velsæld

Nú skaltu fara varlega í jólainnkaupunum og óþarfa eyðslu. Mundu um hvað jólin snúast! Það er auðvelt að heillast af piparkökufjalli með glassúr en það er hinsvegar ekki það sem færir þér eða fjölskyldunni varanlega hamingju. Reyndu að taka þér eins mikið frí og þú getur í þessum mánuði – þú átt það skilið.

Ást

Einhver ládeyða er yfir ástarmálunum þínum þessa vikuna. Kannski mætti skrifa það á gömlu góðu fullkomnunaráráttuna? Mundu að fólk er ekki fullkomið….ekki þú heldur! Ef þú heldur vel á spilunum og siglir ekki stjórnlaust í þunglyndisþanka má vera að eitthvað muni banka uppá hjá þér í næstu viku. Þolinmæði, þolinmæði.

Fjármál

Hugsanlega áttu afmæli síðar í mánuðinum eða byrjun þess næsta. Vil ég benda þér á að gæta hófs í eyðslunni því eins og við vitum ertu afskaplega skipulagður/skipulögð í fjármálunum. Þú átt eina góða vinkonu eða frænku….er ekki alveg viss hvort er – en allavega kvenpersónu sem þú ættir að taka þér til fyrirmyndar hvað stjórnun fjármála varðar. Þú nennir ekki timburmönnum.

sm vatnsberi

Vatnsberi 20 jan-18 feb

Frami og velsæld

Ég veit þú hefur kviðið þessum tíma lengi. Desember. Kannski mætti skrifa það á skipulagsleysi….eða þú hefur gleymt þér á einhvern hátt undanfarna mánuði? Ekki örvænta samt, ég veit það er erfitt að heyra þetta. Um miðjan mánuðinn muntu fá góðar fréttir sem létta jólastressið töluvert. Fjúff! Mundu: Engar áhyggjur en vertu vakandi.

Ást

Æ, þú ert svo viðkvæmur og yndislegur, kæri vatnsberi. Það á eitthvert atvik eftir að henda þig þar sem kærleikur þinn og gleði verður misskilið sem daður. (óþolandi, ég veit!)

Þannig þú þarf pínulítið að vera meira blátt áfram – segja hvað þú virkilega hefur í hyggju eða kannski útskýra mál þitt sértu í sambandi eða hjónabandi. Alltaf best að segja hlutina eins og þeir eru.

Fjármál

Nú skaltu hugsa um hverjum þú ert að lána peninga eða hver er að lána þér peninga. Ekki alveg skýrt hérna, en eitthvað um óhugsuð peningaútlát er hérumbil það síðasta sem þú vilt þennan mánuðinn. Það eru jól, halló!

sm fiskar

Fiskur 19 feb-20 mars

Frami og velsæld

Er ekki lífið dásamlegt? Jú, ég veit! Nú er allt á uppleið, krakkarnir og makinn glaður, nú eða kisinn, voffinn eða fjölskyldan. Fullt af tækifærum og móða undanfarinna mánaða er að hverfa. Njóttu þín!

Ást

Þú ert óvenju ástrík/ur þessa dagana. Þetta virðist hinsvegar vera algerlega þinn mánuður þannig ekki draga neitt úr ástinni – ekki berja þig niður fyrir að vera stórkostleg manneskja. Fyrir alla muni….láttu bara vaða!

Fjármál

Já, ég veit. Desember er erfiðasti mánuðurinn hvað fjármálin varðar. Hefurðu látið athuga hvort þú sért með talnablindu? Margir fiskar eru svo ofboðslega áttavilltir í fjármálum (kunna ekki að lesa á kort, kunna ekki að spara) en það er bara eitt einkenni sem mun ekki ganga frá þér. Þú ert svolítið „þetta reddast“ þennan mánuðinn. Allt í lagi – þetta er einn mánuður af tólf!

sm hrutur

Hrútur 21 mars-19 apríl

Frami og velsæld

Hrúturinn er alltaf fullur af orku og fyrsta vika desember er engin undantekning. Hann verður þó að passa sig að missa sig ekki – fólk vill líka rólegheit og ekki má alveg tapa sér þó skemmtilegur tími fari í hönd.

Ást

Hættu nú að daðra við manneskjuna sem vill þig ekki. Þú átt til að vera svo óþolinmóð/ur að þú gætir fælt fólk í burtu. Betra væri að vera dálítið dularfull/ur og ekki gefa of mikið færi á sér. Það er miklu vænlegra til árangurs…

Fjármál

Þú þarft ekki að hafa miklar áhyggjur af fjármálunum þessa vikuna (sem betur fer!) Njóttu aðventunnar, farðu á kaffihús eða sötraðu jólaglögg í góðra vina hóp.

sm naut

Naut  21 apríl -20 maí

Frami og velsæld

Jæja, nú er uppáhaldstími nautsins að renna upp. Þú hefur beðið allt árið eftir þessum tíma, lagt fyrir og unnið ötullega. Þú átt gott í vændum!

Ást

Afbrýðisemi á eftir að láta á sér kræla….annaðhvort hjá þér eða einhverjum nálægt þér. Ef um þig er að ræða, verðurðu að muna að þú átt enga manneskju – þú verður líka að hætta að taka gjörðum fólks persónulega. Aðeins þá muntu finna hamingjuna.

Fjármál

Nautið þarf engar áhyggjur að hafa af fjármálum þennan mánuðinn. Þú hefur verið það hagsýn/n að leggja fyrir að þetta mun ekki bara „reddast“ heldur haldir þú rétt á spilunum muntu jafnvel koma út í plús!

sm tviburi

Tvíburi 22 maí-21 jún

Frami og velsæld

Oft hafa jólin verið kvíðvænleg hjá tvíburanum. Gæti það tengst æskunni eða óþægilegum minningum einshverskonar um hátíðina. Mundu bara að hið liðna er liðið og að horfa fram á veginn er best fyrir þig – og alla þína nánustu. Fortíðin getur ekki skaðað þig en best er að dvelja í núinu og stíga varlega til jarðar.

Ást

Lofaðir tvíburar verða að hafa tíma fyrir makann í huga því annars fer allt í vitleysu. Það er ekki hægt að keyra í fimmta gír inn í aðventuna og ætlast til að allir fylgi eftir. Ólofaðir tvíburar eiga bara að taka því rólega. Fæstir nenna að bæta ástarsambandi ofan á jólastress!

Fjármál

Ég veit þú ert að hugsa um þessa dýru, flottu gjöf sem þig langar til að gefa einhverjum nánum. Hamingjan er samt ekki mæld í peningum þó auðvitað sé gaman að gefa! Bíddu með að kaupa hana allavega í tvær vikur.

sm krabbi

Krabbi 21 jún – 22 júl

Frami og velsæld

Þú ert afar meyr þessa fyrstu viku desember. Gæti það tengst annaðhvort börnunum þínum eða foreldrum? Leyfðu þér það bara – það er í eðli krabbans að reyna stöðugt að breyta líðan sinni. Þér MÁ líða svona!

Ást

Það eru hræringar í ástamálum krabbans þessa dagana. Ekki endilega slæmar þó. Stundum er gott að taka tíma út fyrir sig og mundu að stundum er autt rúm betra en illa skipað.

Fjármál

Þú hefur verið frekar annars hugar og allt í einu eru jólin handan við hornið. Þú þarft samt ekki að hugsa of mikið eða demba þér í streitufullar hugsanir. Taktu lífinu með ró (anda djúpt….út og inn….!)

sm ljon

Ljón 23 júl – 22 ág

Frami og velsæld

Ljónið er aðeins búið að fara fram úr sjálfu sér á þessum tíma ársins (ekkert nýtt svosem!) Þig langar svo mikið að gera öllum til geðs, hjarta þitt er svo örlátt en þú átt til að færast of mikið í fang.

Ást

Lofuð ljón: Hlustaðu á betri helminginn. Nei, bara HLUSTAÐU. Þú vilt oft tala og tala og gleymir að heyra það sem fólk er að segja. Bara að bakka – ljónið hefur gott af því þó því finnist það erfitt.

Ólofuð ljón: Mega alveg líta í kringum sig. Það er einhver að sverma fyrir þér en þú átt til að taka ekki eftir svoleiðis löguðu!

Fjármál

Fjármál eru í röð og reglu hjá ljóninu en það ætti að passa yfirdráttinn/vísareikninginn því það koma áramót eftir þessi jól…

sm meyjan

Meyja 23 ág – 22 september

Frami og velsæld

Meyjan er róleg og sátt við frábært ár og siglir inn í desembermánuð með bros á vör. Enda áttu skilið að taka því rólega….þú hefur unnið ýmis þrekvirki á þessu ári og mátt vera þakklát/ur.

Ást

Það síðasta á lista meyjunnar fyrir jólin er að hugsa um ástarmálin….og það er bara fínt, ekki satt? Vertu bara ástfangin af sjálfri þér!

Fjármál

Meyjan á til að fyllast vonleysi að hugsa um fjármál í desember. Hún þyrfti að vera aðeins ákveðnari að hlusta á eigin innsæi þegar kemur að fjármálum, nú eða velja gjafir. Það er hugurinn sem skiptir máli, ekki tegundin á ilmvatninu eða hvort þú keyptir gjöfina í Hagkaup eða Epal. Og hananú!

sm vogin

Vog 23 sept – 22 okt

Frami og velsæld

Það er mikil ró yfir voginni þessa dagana. Ekki allir eru svo heppnir. Jólastress er ekki til í þér og þig langar mest að kúra þig uppí sófa með teppi, heitt kakó og góða bók. Gerðu öll blessuðu jólainnkaupin tímanlega og þú flýgur í gegnum mánuðinn.

Ást

Þú ert svo mikið í þinni eigin veröld að þú tekur illa eftir því sem er í gangi umhverfis þig. Lofaðar sem ólofaðar vogir ættu að opna augun gagnvart maka eða vinum sem eiga í vandræðum. Þú ert svo næmur og heilandi einstaklingur sem hefur svo mikið að gefa. Gefðu þá af þér! Eftir hverju ertu að bíða?

Fjármál

Þú gætir fengið tækifæri fyrstu eða aðra vikuna í desember. Eitthvað verkefni sem er í raun ekki vinna í eiginlegum skilningi fyrir þér, heldur í raun bara skemmtun. Taktu verkefninu því það er gott fyrir andlegu hliðina og budduna líka!

sm steingeit

Sporðdreki 23 okt – 21 nóv

Frami og velsæld

Þú ert ekki alveg eins og þú átt að þér að vera þessa dagana. Farðu í reglubundið tékk hjá lækninum – já þetta sem þú ert búin/n að vera að fresta…þér líður svo miklu betur að vita að allt sé í lagi.

Ást

Eitthvað sé ég hjá sporðdrekanum varðandi vinnustaðinn hans. Eitthvað kemur upp, hvort sem það er hjá honum eða einhverjum nákomnum. Farðu varlega!

Fjármál

Óvænt útgjöld koma upp þannig best væri að fara varlega í eyðsluna svona fyrst um sinn. Allt mun enda vel að lokum og þú færð hjálp úr óvæntri átt.

sm bogmadur

Bogmaður 22 nóv – 21 des

Frami og velsæld

Einhver saknar bogmannsins síns mikið og hlakkar til að hitta hann. Veistu um hvað ég er að tala? Gott – sinntu því af öllu hjarta. Þú ert afskaplega góðu andlegu og líkamlegu formi og svo er svo gaman að tala við þig! Njóttu þín!

Ást

Sumir gætu mistúlkað bæði lofaða og ólofaða bogmenn þessa dagana. Þú átt til að treysta um of á aðra og ekki þitt eigið hyggjuvit. Hlustaðu á hjarta þitt!

Fjármál

Bogmaðurinn er búinn að vera skynsamur í fjármálum og uppsker nú árangur erfiðis síns. Mánuðurinn verður afar góður – til hamingju!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!