KVENNABLAÐIÐ

Ást í hverjum bita: Heimagerðir hunangs- og hnetumolar með múslí og þurrkuðum berjum

Varla er nokkuð betra en heimagerðir morgunbitar, sem læða má í nestispokann eða grípa á leið út um dyrnar rétt áður en veðrið skellur á og umferðin gleypir vegfarendur. Í þessa uppskrift fara þurrkuð ber og morgunkorn að eigin vali, hellingur af ást og bráðhollt hnetusmjör sem er stútfullt af próteini og góðri fitu.

screenshot-www.chewoutloud.com 2015-11-26 23-28-54

Dísæt og bráðholl freisting fyrir börn og fullorðna; dásamlegt heilsunasl í ræktina og enn betri viðbót í nestisboxið. Hvað er enda betra en heimatilbúið hollustusnakk í lok strangrar skóla- og vinnuviku sem eykur ekki bara orku heldur læðir brosi á litla (og stærri) munna!

 

I N N I H A L D S E F N I:

4 bollar (amerísk mælieining) Cheerios

1 bolli þurrkuð berjablanda (trönuber, bláber o.sv.frv.)

½ bolli hunangsristaðar hnetur

½ bolli agave hunang

½ bolli lífrænt hnetusmjör

Nuts

L E I Ð B E I N I N G A R:

#1 – Smyrjið ágætt bökunarmót að innan og leggið til hliðar; formið er ekki ætlað til að baka bitana í ofninum – heldur til að leggja í ísskáp í u.þ.b. klukkustund, áður en blandan er skorin í bita.

#2 – Blandið saman Cheerios, þurrkuðum berjum og hnetum í stórri skál.

#3 – Hitið hunangið og hnetusmjörið í litlum potti, hrærið stöðugt í blöndunni þar til hún er orðin þétt, mjúk og rennileg. Ef blandan verður mjög heit í pottinum er ágætt að láta hana kólna í smávægilegan tíma og taka fram þegar hunangslagað hnetusmjörið er orðið volgt.

#4 – Hellið blöndunni því næst yfir Cheerios- og hnetu / berjablönduna í skálinni og hrærið öllu vel saman.

#5 – Hellið að lokum blöndunni í bökunarformið og látið standa inni í ísskáp í klukkutíma; takið svo út og skerið í litla og handhæga bita sem fara vel í nestisboxið.

cranberry-bowl

Uppskrift & Ljósmyndir// Chew Out Loud

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!