KVENNABLAÐIÐ

TATTOO: Hrífandi svipmyndir af flúrtísku og líkamslist undanfarinna 100 ára

Húðflúr hafa tekið ótrúlegum breytingum undanfarna áratugi og þannig er algerlega magnað að renna augunum yfir myndbandið hér að neðan, sem sýnir hafa áherslubreytingar hafa orðið á líkamslist.

Öllu óvenjulegra er þó að húðflúrin sem hér má sjá prýða öll likama Casey nokkurrar Lubin, en stúlkan sú samþykkti að veita húðflúrmeistara óhindrað aðgengi að líkama sínum, sem sá hinn sami flúraði á einni viku – allt í nafni listarinnar – svo festa mætti á filmu.

Sjálf sagðist Casey hugfangin þegar teymi The Cut lagði hugmyndina fyrir hana, en stúlkan valdi öll ellefu flúrin sjálf, sem hvert um sig endurspeglar þá strauma og stefnur sem voru ríkjandi í flúrlistinni á hverjum áratug síðustu aldar.

Magnað í einu orði sagt og gullfallegt um leið:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!