KVENNABLAÐIÐ

SJúklega sexí PLATFREKNUR – tímabundin FLÚR sem segja SEX!

Freknur geta verið alveg sjúklega sexí, en ekki allir eru svo lánsamir að geta státað af því að fá freknur þegar út í sólina er komið. Hins vegar, takist snyrtifyrirtækinu Freck Yourself að kosta framleiðsluna, verður brátt hægt að panta gervifreknur með litlum tilkostnaði – förðunarborða sem tryggja sýnilegar andlitsfreknur í allt að 4 – 6 vikur.

Ansi sérstæð fjármögnun stendur þanni gyfir á Kickstarter um þessar mundir, en freknusettið sem fyrritækið hyggst setja á markað, mun innihalda eina 72 sjálflímandi förðunarstensla og freknufarða sem er ekki ólíkur sjálfbrúnkandi farða. Förðunarstenslarnir eru allir útbúnir örsmáum deplum sem mynda freknurnar, sem koma í ljós og sitja eftir á hörundinu þegar farðinn hefur verið borinn á og stensillinn er fjarlægður.

Stórsniðugt og bráðskemmtilegt, en Remi Brixton, sem er talsmanneskja Freck Yourself sagði þannig í viðtali við vefmiðilinn Mashable að sjálf saknaði hún freknanna ævinlega þegar ský drægi fyrir sólu á haustin:

Með þessu móti langar okkur að bjóða upp á tímabundnar freknur, sérstaklega meðan á myrkasta skammdeginu stendur – án þess að fólk þurfi að húðflúra freknurnar á sig með öllu.

Hér að neðan má sjá hvernig ætlast er til að fólk noti frenkustenslana, sem væntanlegir eru á markað ef fjármögnun ber árangur – en Kickstarter síðuna má skoða HÉR:

#1 – Hagræddu stenslinum á andlitinu:

F1

#2 – Þrýstu stenslinum þétt upp að hörundinu: F2

#3 – Berðu sjálfan freknulitinn á stensilinn:

F3

#4 – Fjarlægðu stensilinn – þú ert með freknur!

f4

@Freck Yourself

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!