KVENNABLAÐIÐ

Háfemínískt REMIX af Hotline Bling sjúklega flott mótsvar við KARLREMBU Drake

Hér er komið háfemínískur snúningur á nýútkomnum dónasmelli Drake, Hotline Bling og það er engin önnur en Ceresia; frambærileg og hæfileikarík ung söngkona sem heldur úti YouTube rás þar sem hún endurflytur þekkta slagara með skemmtilegu ívafi.

Smart hjá Ceresiu, sem snýr flagaralínum sálarknúsarans upp í stelpnarím með sigrihrósandi ívafi og gefur sér þekktari gullbörkum ekkert eftir, en melódísk stílbrigði Ceresiu minna einna helst á raddsvið sjálfrar Beyoncé á köflum. Erykah Badu endurhljóðblandaði reyndar Hotline Bling fyrir skemmstu og fórst vel úr hendi, en Ceresia hefur hins vegar örlítið átt við textann og því mælir ritstjórn með að hlustendur leggi vel við eyru …

… hér er Ceresia, en að neðan má svo heyra frumútgáfuna sjálfa í flutningi Drake:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!