KVENNABLAÐIÐ

Rose Quartz og Serenity – Pantone velur tvo liti sem endurspegla jafnræði kynjanna

Ljósbleikur og himinblár eru litir ársins 2016. Þessa yfirlýsingu gaf Pantone út fyrir skömmu og er dumbrauður tónn Marsala, sem réði ríkjum árið 2015 og olli vanþóknun spekúlanta þar sem ryðbrúnn liturinn þótti minna helst á ryðhrúgu og lítt steiktan kjöthleif, að renna sitt síðasta skeið.

Þetta er í fyrsta sinn sem Pantone kynnir tvo liti til sögunnar sama árið, en tónarnir heita Rose Quartz (barnableikur og Serenity (barnablár) en valið er skírskotun til jafnræðis og fljótandi og síbreytilegra marka sem aðgreina kynin tvö. Pantone, sem er leiðandi á heimsvísu í litavali velur lit komandi árs í desember á hverju ári,  en valið ákvarðast af ströngu samstarfi við leiðandi einstaklinga í hátískuheiminum, fegurðarbransanum, sérfræðinga á sviði innanhússhönnunar og grafískri hönnun svo eitthvað sé nefnt; allt í þeim tilgangi að spá fyrir um þær línur sem verði áberandi á komandi ári.

151207_EYE_PantoneColorOfTheYear20164.jpg.CROP.original-original

Í fréttatilkynningu frá Pantone segir að neytendur leitist við að finna hugarró og innri fyllingu sem mótvægi við daglega streitu sem fylgir ys og þys nútímalífs og þar fari róandi litatónar með stórt hlutverk.

151207_EYE_PantoneColorsOfTheYear20161.jpg.CROP.original-original

Litavalið segir Pantone þá Serenity, eða bláa litinn vera léttan og loftkenndan, slakandi og endurspegla tæran himinn sem hvolfist yfir allt, sefandi sem bjartur og endurnærir sál og huga, jafnvel þegar annir standa hvað hæst.

151207_EYE_PantoneColorsOfTheYear20162.jpg.CROP.original-original

Rose Quartz, eða barnableikur, sé þá hughreystandi og blíður litatónn sem hvetji til samkenndar og kærleika, ef ekki ákveðins samruna og fullnægju.

Lesa má meira um liti ársins á vefsíðu Pantone, þar sem einnig má skoða litapallettur ársins 2016

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!