KVENNABLAÐIÐ

Viðbjóðslega hrífandi – Lærðu ÓGEÐSLEGA förðun fyrir HREKKJAVÖKU

Ef þig langar að vekja upp virkilegan viðbjóð og í raun bara skelfa fólk á sjálfri Hrekkjavökunni, er ekki úr vegi að líta á myndböndin sem Bonnie Corban heldur úti á YouTube.

Þar fer stúlkan fer meðal annars yfir hvernig á að hanna rakvélamunn sem haldið er saman af öryggisnælum en hún sýnir svo mikla yfirvegun og ró við gerð viðbjóðslegs gervisins að ætla mætti að hún hreint út sagt hrífist af blóði drifnu listaverkinu. Best er þó sennilega að drekka vel og borða áður en ráðist er í verkið, þar sem erfitt er að opna munninn á meðan (nema drukkið sé gegnum sogrör) og í Guðs bænum, farið varlega með öryggisnælurnar!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!