KVENNABLAÐIÐ

Hvernig er hægt að koma í veg fyrir aukakílóin í vetur

Þegar laufin tók að falla af trjánum nú í haust og fyrstu snjókornin féllu í vetur, tókum fram hlýju fötin okkar og leituðum huggunar í mat og drykk. Ljúffengar súpur og heitt súkkulaði. Enginn var að telja hitaeiningar. Svo leið að þakkagjörðarhátíðinni, jólaglögginu, jólahlaðborðunum, jólunum, áramótunum, árshátíðunum og við gleymdum öllum fyrirætlunum um að borða hollt og aukakílóin kíktu eitt af öðru í heimsókn. Og þar sem það er vetur þá er auðvelt að fela þau undir stórum kápum, víðum peysum, úlpu og stórum treflum. Við erum töff, fylgjum tískunni og þægindin ráða ferðinni. En þurfum við á þessari aukabyrði að halda?

Það er mjög mikilvægt að vera með plan um hvernig maður heldur sér í formi á veturna, alveg eins og þegar vora tekur og við eru léttklæddari.

Hér koma nokkur ráð sem auðvelt er að tileinka sér:

1. Vökvaðu þig
Vatn er mjög mikilvægt allt árið um kring. Vertu alltaf með vatnsflösku við höndina og drekktu nóg af vatni. Það kemur ekkert í staðinn fyrir vatnið svo þú getur ekki drukkið kaffi eða te í staðinn. Það er viðbót við vatnið. Það er tilvalið að byrja daginn á volgu sítrónuvatni sem kemur þér í gang, örvar meltinguna, gefur þér orku og eykur brennsluna. Og ekki er verra að tileinka sér morgun sítrónuhreinsun.

2. Hafðu stjórn á kolvetnaneyslunni
Þú þarft ekki að hætta að neyta kolvetna en að borða kolvetni í hverri máltíð á hverjum degi er alls ekki góð hugmynd. Minnkaðu kolvetnaneyslu og vertu vandlát á hvers konar kolvetni þú lætur ofan í þig. Í stað þess að borða hvítt brauð, borðaðu þá hrökkbrauð. Slepptu hvítu pasta og fáðu þér spelt eða heilhveiti í staðinn.

3. Verðlaunaðu þig skynsamlega
Kex, kökur og sælgæti er eitthvað sem fylgir þessari árstíð og þú gætir átt góðar minningar um góðu smákökurnar hennar mömmu og súkkulaði drykkinn sem þú fékkst alltaf hjá Gunnu frænku, en farðu varlega þarna. En það þýðir ekki að þú þurfir að neita þér um allt og naga bara gulrót. Lærðu að verðlauna þig skynsamlega og minnkaðu skammtana. Smakk er oft alveg jafn fullnægjandi og fullur diskur.

woman-running-snow-outdoors-LEAD

4. Keyptu þér kort í ræktina
Þetta er ein best fjárfestingin á veturna. Það er erfiðara að drífa sig út að hlaupa eða synda þegar hitastigið fellur. Farðu með vinkonu í ræktina og finndu eitthvað þar sem þér finnst skemmtilegt. Passaðu að hreyfa þig allavega þrisvar sinnum í viku. Ef þú hefur plássið og sjálfsagann þá getur þú líka gert þetta heima hjá þér. Þessar æfingar eru frábærar til að móta líkamann og missa aukakíló

5. Keyptu nóg af ávöxtum og grænmeti
Tilvalið að styrkja ónæmiskerfið og fá meiri orku yfir vetrarmánuðina. Flest grænmeti og ávextir er hollur valkostur. Með því að borða meira af ávöxtum og grænmeti yfir vetrarmánuðina þá styrkir þú ónæmiskerfið, eykur orkuna, bætir heilsuna og forðast aukakílóin með því að velja hollari valkost.

6. Taktu ábyrgð
Þú ert sú eina sem getur fengið þig til að æfa og fylgja hollri mataráætlun. Ekki treysta á maka þinn, vinkonu, foreldra þína eða aðra. Skynsamlegast er að borða allt en í minni skömmtum og leyfa sér sjaldnar óhollustu. Að borða mjög lítinn skammt eða smakka á uppáhalds kökunni þinni gerir þig ekki feita. Notaðu skynsemina og taktu ábyrgð.

Þegar myrkrið og veturinn skellur á okkur þá leitum við oft í mat til að láta okkur líða betur en það virkar ekki þannig. Hlustaðu á líkama þinn og gefðu honum næringarefni sem hann þarfnast en ekki bara hitaeiningar.

Heimild: www.womenshealth.com

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!