KVENNABLAÐIÐ

FÖRÐUN: Bjargaðu BROTNA sólarpúðrinu og endurnýttu sem DAGKREM!

Uppáhalds sólarpúðrið, sem er alveg að verða búið – getur hæglega gengið í endurnýjun lífdaga sinna og það er lítið mál að búa til litað dagkrem úr síðustu örðunum.

Í stað þess að reyna að ná lit úr síðustu molunum af sólarpúðrinu er alveg tilvalið að mylja upp síðasta púðrið og umbreyta í nærandi rakakrem með örlitlum lit. Hér má sjá hvernig það er gert í örfáum skrefum.

5d9a7873-edit-5_6243c0dcf2d7aeece7560dbda08c53ed.today-inline-large

#1 – Taktu uppáhalds rakakremið þitt fram; settu því sem samsvarar einni vænni teskeið af rakakreminu og settu saman við sólarpúðrið. Ágætt er að miða við hlutföllin 1:1 – en þú getur líka brotið sólarpúðrið niður í smærri mola og hrært út í ágætu í láti – eins og lítilli Tupperware dollu með loki!

5d9a7873-edit-6_360c2e1151aa674f9713521b2af2b92f.today-inline-large

#2 – Notaðu litla skeið til að hræra blöndunni vel saman; þú getur líka notað skaftið á förðunarburstanum þínum til að blanda saman og hræra rakakreminu saman við sólarpúðrið. Gættu þess að mylja sólarpúðrið vel niður svo það blandist betur saman við rakakremið.

5d9a7873-edit-7_925df69d572739c85f4932ca34bd8e4a.today-inline-large

#3 – Vittu til; þú getur notað litað rakakremið sem þú hrærðir til sjálf sem kinnalit og líka sem litað dagkrem sem frískar upp á hörundið. Frábært er ef rakakremið inniheldur sólarvörn og er nærandi fyrir andlitshörundið – það veitir hörundinu enn meiri vörn!

powder-cream-mix-today-makeup-151001-smaller_7fb3a3948e06205899e3992e08710256

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!