KVENNABLAÐIÐ

Bieber á Íslandi! – Veitti DV viðtal og hljóp um grjótagarðinn í Grindavík

Justin Bieber er á Íslandi. Þessu greina bæði VÍSIR og DV frá, en ekki er ljóst hvort poppstjarnan er í fríi á Íslandi eða hvort um stutta millilendingu er að ræða. Á vef VÍSIS er greint frá því að stúlknatryllirinn hafi yfirgefið Keflavíkurflugvöll og sett stefnuna beint á Grindavík.

Í fylgd með Justin voru u.þ.b. 15 fílefldir lífverðir en bílaröðin sem fylgdi unglingastjörnunni, staðnæmdist utan við veitingastaðinn LEMON. Jón Þór Gylfason, eigandi Lemon í Reykjanesbæ sagði þannig í viðtali við VÍSI að Bieber hefði ekki gefið sér tíma til að borða:

„ …en hann sagðist hugsanlega ætla koma aftur seinna. Hann mætti ásamt svona fimmtán lífvörðum á tveimur risastórum Mercedes Benz sendiferðabifreiðum. Hann er greinilega hér ásamt tveimur vinum sínum en þeir hlupu allir meðfram Lemon og í áttina að sjónum, þar er svona grjótgarður og vinsæll staður fyrir túrista.“

Á vef DV kemur fram að Atli Már Gylfason, blaðamaður, hafi rokið til fundar við Justin og náð þannig mynd af honum ásamt viðtali sem mun birtast á vef DV seinna í dag. Kennimerkið BIEBERICELAND flögrar nú á Twitter og má þar sjá fáeinar ljósmyndir sem stálheppnir aðdáendur hafa náð að smella af stjörnunni – en hægt er að skoða veituna HÊR

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!