KVENNABLAÐIÐ

H O N E Y M O O N: Óprúttnir leka ALLRI breiðskífu Lana Del Rey á netið eftir Urban Outfitters forspilun

Óútkomin breiðskífa Lana Del Rey lak í heilu lagi á netið, örfáum tímum eftir að Urban Outfitters buðu útvöldum til sérstakrar forspilunar í öllum útibúum þess síðarnefnda þann 12 september og fóru einhver lög beint á YouTube, þar sem þau fengu að hanga inni í örskamma stund áður en fagteymi Lönu setti bann á frekari hlustun. 

Það er augljóslega í ófá horn að líta fyrir útgáfu breiðskífu – alla vega ef Lana Del Rey á í hlut – en hér má hlýða á nýjustu smáskífuna af HONEYMOON, sem kemur formlega út eftir örfáa daga. Áður útkomnar smáskífur af HONEYMOON eru þær Honeymoon, sem er titillag plötunnar ásamt Terrence Loves you og High By The Beach svo nú er um að gera að smella í playlista og grandskoða nýjustu útgáfu Lönu:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!