KVENNABLAÐIÐ

Terrence Loves You: Melódramatísk Lana Del Rey með tvær nýjar smáskífur

Lana Del Rey afhjúpaði lagalista af óútkominni breiðskífu sinni, Honeymoon, á Instagram fyrir fáeinum dögum og gaf við sama tækifæri út nýja smáskífu, sem ber nafnið Terrence Loves You

Áður eru komnar út smáskífurnar Honeymoon, sem SYKUR fjallaði um í júlí ásamt laginu High By The Beach sem Lana hefur nú gefið út myndband við. Áætlaður útgáfudagur Honeymoon er 18 september, en þetta er fjórða breiðskífa söngkonunnar.

Sjálfan lagalistann opinberaði Lana á Instagram um síðustu helgi en að neðan má hlýða á ástaróðinn Terrence Loves You og sjá myndbandið við smellinn High By The Beach: 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!