KVENNABLAÐIÐ

Good For You: Dúett Selenu Gomez og A$AP Rocky þýtur upp topplista Billboard

Liðnir eru dísætir dagar Disneyævintýra Selenu Gomez. Ungstirnið, sem stríddi aðdáendum sínum á Instagram með sjóðheitum myndskotum fyrr í sumar og ýjaði að nýju verkefni; hefur gefið loks út myndband við smáskífuna Good For You, sem er dúett þeirra A$AP Rocky.

Í upprunalegu útgáfunni sást A$AP Rocky hvergi bregða fyrir, en loks hefur ljúf leiðrétting litið dagsins ljós; myndbandið sjálft fór í loftið nú í þessari viku og sýnir og sannar svo um munar að Selena er orðin glæsileg, fullorðin kona sem hefur fullt vald á eigin raddstyrk og geislar af meðfæddu sjálfstrausti.

singles-bb20-selena-asap-good-for-you-billbaord-412

Myndbandið við lostafulla smellinn Good For You var frumsýnt gegnum VEVO rás A$AP Rocky þann 19 ágúst sl. og hefur þegar rakað inn yfir þremur milljónum áhorfa, en þess má geta að upprunalega VEVO myndbandið sem kom út í júní og var frumkynning á smellinum hefur verið spilað ríflega 78 milljón sinnum frá útgáfudegi.

screenshot-www.billboard.com 2015-08-26 09-55-39

Good For You rataði aftur inn á Topp 10 lista Billboard í þessari viku og prýðir sjötta sætið þegar þessi orð eru rituð, allt eftir útgáfu myndbandsins og það þó smellurinn hafi slegið í gegn í sumar. Þetta er fyrsta smáskífa Selenu af væntanlegri sólóskífu söngkonunnar, REVIVAL, sem er kemur út í byrjun október á þessu ári.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!