KVENNABLAÐIÐ

Ástarstjörnuspá fyrir vikuna 04.-10. september

Hvað segja stjörnurnar um ástarlíf merkjanna þessa vikuna? Sumir eiga ástríðufulla viku framundan, sumir prófa eitthvað nýtt í ástarlífinu og aðrir ættu að halda sér á mottunni. Allt um það hér!

hrutur

Hrúturinn

Ástin er í loftinu… Ef þú ert laus og liðug þá skaltu láta sjá þig í bænum þessa viku því miklar líkur eru á að þú hittir einhvern. Ef þú ert í sambandi þá ættir þú að gera eitthvað sérstakt með elskunni þinni þessa vikuna. Kannski hætta snemma, hittast í Happy Hour, fara út að borða eða elda saman tvö. Njóta kvöldsins við kertaljós og tónlist.

naut

Nautið

Ekki vera ósýnileg! Láttu heyra í þér. Tjáðu skoðanir þínar og líðan. Það gæti verið að þú fáir lítinn hljómgrunn til að byrja með en svo færðu liðsmenn. Skipuleggðu kósý stundir með besta vini þínum, elskhuga eða maka. Eldaðu góðan mat og opnaðu góða flösku af hvítvíni. Það er svo gott að spjalla.

tvíburi

Tvíburinn

Þú þarft nú bara alla þessa viku til að skipuleggja þig og taka til í kringum þig vinkona. Sumarið er búið. Ekkert meira kæruleysi. Það er þó enn tími til að taka eitt stefnumót við einhvern sem þú hittir í sumar ef þú ert á lausu. Einhver úr fortíðinni gæti poppað upp í líf þitt. Annars er ekki neitt sérstaklega spennandi teikn í loftum fyrir Tvíbura í samböndum. Allt gengur bara sinn vanagang.

krabbi

Krabbinn

Þú mátt slaka aðeins á. Þú þarft ekki að hugsa um alla í fjölskyldunni alveg allan sólarhringinn. Prófaðu að hitta góða vinkonu og losa um og ræða málin. Það gæti komið upp smá ágreiningur í sambandinu við kæró en þú verður að losa þig við þrjóskuna og gefa eftir. Ættir kannski að skella þér aðeins í burtu, 2-3 daga.

Ljón

Ljónið

Þú ert með ótrúlegt aðdráttarafl þessa dagana og ættir að ná þér auðveldlega í kærasta ef þú ert einstæð. En gættu hvers þú óskar þér því það er eins og eitthvað drama liggi í loftinu. Ef þú ert í sambandi þá mun það blómstra þessa viku eftir smá niðursveiflu. Gerðu eitthvað skemmtilegt og rómantískt með maka þínum. Fullt af skemmtilegum tónleikum t.d. í gangi.

meyja

Meyjan

Kæra vinkona, hvar er jafnvægið á milli ég og við? Þú þarft ekki að vera með maka þínum allan daga, allan daginn. Prófaðu að vera ein, labba laugaveginn, skella þér á kaffihús, lesa í bók, eitthvað. Annars mun hann bara fá leið á þér fljótt. Gömul mál sem þú hélst að væru gleymd og grafin gætu poppað upp og ýfa upp vondar tilfinningar. Leystu nú úr þessu í eitt skipti fyrir öll.

vogin

Vogin

Ekki ana að neinum ákvörðunum. Þú þarft að vita meira og rannsaka áður en þú tekur ákvörðun. Ekki láta neinn ýta á þig. Þú ert búin að vera voða vinsæl í allt sumar og þér finnst þú aðeins útundan núna en brátt ferðu að vera mjög upptekin í félagslífinu á ný. Ef þú ert einstæð og á Tinder þá mun einhver spennandi bjóða þér út í vikunni.

sporðdreki

Sporðdrekinn

Það mikilvægasta sem þú tileinkar þér þessa vikuna er að hlæja og ekki taka hlutunum of alvarlega. Húmor er þinn besti vinur núna. Ef þú ert einstæð þá muntu hitta eldri mann sem hefur ómóstæðilegan kynþokka, sennilega í gegnum vinnutengda skemmtun. Taktu hlutunum rólega og ekki ýta of mikið á hann. Sporðdrekar í sambandi ættu að reyna gera eitthvað skemmtilegt. Fara út að borða, skemmta sér og hafa það huggulegt saman.

bogmaður

Bogmaðurinn

Það er kominn tími til að þú takir hlutunum aðeins meira alvarlega í þessari viku. Þú ert auðvitað ávallt 21 í hugsun en það reynir eitthvað á þroska þinn núna. Það mun eitthvað stórkostlegt gerast í ástarlífinu og þú prófar eitthvað nýtt. En hugsaðu þig um tvisvar áður en þú tekur þátt í að fara á stefnumót með þekktum einstakling, kyssa giftan mann, fara í treesome eða eitthvað svoleiðis drasktísk. Rómantíkin blómstrar í sambandinu.

steingeit

Steingeitin

Það eru allir voða viðkvæmir í kringum þig og þú verður að stíga varlega til jarðar. Ef þú getur þá máttu aðeins slaka á skipulaginu og vera næs og spontant. Það verða einhverjar óvæntar uppákomur í ástarlífinu og ef maki þinn stingur upp á að þið farið eina nótt á hótel alveg upp úr þurru þá skaltu finna kæruleysi djúpt innra með þér og segja já. Þú munt ekki sjá eftir því. Einstæðar steingeitur ættu að prófa að fara á stefnumót við „bad boy”.

vatnsberi

Vatnsberinn

Gættu að orðum þínum þessa viku. Þú gætir sært einhvern án þess að fatta það. Ekki vera heldur að gaspra neitt um náungann. Hafðu hlutina fyrir þig. Þú munt gera uppgötvun í ástarmálunum. Vatnsberi sem er búinn að vera hitta einhvern mun taka ákvörðun um hvort þetta verði að sambandi eða ekki. Vatnsberi í sambandi eða hjónabandi er gjörsamlega óstöðvandi í svefnherberginu og prófar nýja hluti.

fiskar

Fiskarnir

Það er eðlilegt að þér sé ekki sama hvað öðrum finnst um þig en láttu það ekki eiga úrslitaatkvæði í málefnum hjartans. Það kemur engum við hverjum þú ert ástfangin af. Það ert þú sem ætlar að búa með viðkomandi. Eigðu frekar stund með sjálfri þér og farðu yfir í huganum hvort að þetta sé rétta manneskjan fyrir þig. Vertu heiðarleg við sjálfa þig og þá tekur þú rétta ákvörðun.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!