KVENNABLAÐIÐ

Bieber brotnaði niður og hágrét með ekkasogum á sviði MTV VMA í gærkvöldi

Justin Bieber brotnaði niður og hágrét á sviði MTV VMA í gærkvöldi, þegar hann hafði lokið við tilfinningaríkan flutning sinn á smellunum Where Are You Now og What Do You Mean. Atriðið var óvænt og augljóslega ekki æft, en sár ekkasog Bieber og svo táraflóð hans fór ekki framhjá neinum sem á horfði.

Aðdáendur gullbarkans unga tóku samstundis við sér og hefur Bieber verið lofaður í hástert fyrir frammistöðu sína á sviði í gærkvöldi, en drengurinn hefur átt í talsverðum útistöðum við bandaríska löggæslu undanfarin misseri og hefur sá orðrómur gengið að umboðsteymi Bieber hafi meðal annars bannað drengnum að veita viðtöl í beinni útsendingu.

justin-bieber-crying-performing-2015-mtv-vmas

Ekki ber á öðru en að Bieber hafi loks fundið ljósið og feti nú beinu brautina, sérstaklega eftir táraflóð gærkvöldsins, sem einhverjir vilja meina að lýsi eftirsjá. Flögrar nú kennimerkið #BieberIsBack um netheima, þar sem aðdáendur segja drenginn hafa snúið við blaðinu; að loks sé tekið að glitta í kanadíska smábarnið sem sló í gegn á YouTube með einlægri nálgun og gítarslætti fyrir fjölmörgum árum síðan.

Hér má sjá atriði Bieber í heild og niðurbrot hans í lok flutnings á sviði:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!