KVENNABLAÐIÐ

LOKSINS! – Bieber BER AÐ OFAN og brjálaður af SORG vegna Selenu við lagið What Do You Mean?

Justin Bieber, sem hefur allt vitlaust verið að gera gegnum samskiptamiðla undanfarnar vikur með óskiljanlegri niðurtalningu sem enginn botnaði í, hefur LOKS afhjúpað leyndarmálið. Nýtt lag hefur litið dagsins ljós og Bieber er ber að ofan í myndbandinu, brennir yfir bandaríska stórborg á hjólabretti og syngur sáran.

Engu að síður er Bieber hér á ferð; að öllum líkindum að syngja til Selenu – sem sleit stormasömu sambandi við poppgoðið á eftirminnilegan hátt fyrir fáeinum mánuðum og samdi ljúfsára ballöðu um drenginn skömmu síðar. Hér virðist Justin gjalda henni lambið gráa og spyr einfaldlega: What Do You Mean?

Ber að ofan, vopnaður hjólabretti og sárum söknuði – hér er Bieber í nýju lagi: 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!