KVENNABLAÐIÐ

Snapchat fyrir tölvur

Nú er tími fyrir Snapchat-notendur að gleðjast!
Nú er tími fyrir Snapchat-notendur að gleðjast!

Ert þú einn þeirra sem tekur símann með í ræktina og sendir mörghundruð snöpp á meðan þú æfir? Eða varstu kannski að eignast barn og sendir öllum sem þú þekkir (og þekkir ekki) snöpp úr barnafmælum? Nú eða áttu kannski kött..? Þá er þetta fyrir þig!

Núna geturðu verið enn meira óþolandi í augum vina þinna og sent snöpp án þess að taka upp símann!

Síðan Snap Me Now býður notendum sínum að taka snöpp beint á tölvuna sem þeir geta svo sent út um allt. Á síðunni getur maður valið það allra helsta sem Snapchat býður upp á; valið tíma og takmarkað hversu margir geta skoðað snappið áður en það verður útrunnið. Eins og er er notendum einungis kleift að taka ljósmyndir til að senda, en hver veit hvað gerist næst. Tékkit!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!