KVENNABLAÐIÐ

Vandræði í paradís? Kylie og Travis sváfu á sitthvoru hótelinu eftir VMA hátíðina í gær

Kylie Jenner og Travis Scott komu saman á VMA hátíð MTV mánudagskvöldið 20. ágúst. Travis kom fram á hátíðinni í trylltu atriði og fóru þau á djammið í 1 Oak á eftir með vinum sínum og stjörnum.

Auglýsing

Kylie leit afskaplega vel út í hvítu leðurdressi en hún brosti ekki einu sinni allt kvöldið. Þau fóru úr partýinu tvö saman en fóru svo í hvorn sinn bílinn og gistu ekki á sama hóteli í Soho í New York.

Kylie og Travis í gær. Travis lítur út fyrir að hafa reykt eitthvað sterkara en sígarettu
Kylie og Travis í gær. Travis lítur út fyrir að hafa reykt eitthvað sterkara en sígarettu
Auglýsing

Jenner var nýbúin að segja í viðtali við ástralska Vogue að þau tvö „sofi aldrei án hvors annars.“

Þetta lítur ekki vel út!

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!