KVENNABLAÐIÐ

Kim Kardashian þenur LEIKLISTARTAUGARNAR í stórundarlegri AUGLÝSINGU

Kardashian fjölskyldan vílar ekki fyrir sér að feta ótroðnar slóðir þegar að peningaöflun kemur, en nýjasta uppátæki Kim verður þó að segjast undarlegt í meira lagi.

Í fyrsta lagi lítur ekki út fyrir að Kim lepji dauðann úr skel og svo má um það deila hvort stúlkan hafi nokkru sinni sötrað á Hype Energy sjálf, en auglýsingin, sem er yfir tveggja mínútna löng sýnir Kim hjóla glaðbeitta á reiðhjóli – vopnuð reiðhjólakörfu sem er sneisafull af orkudrykknum. Skyndilega fellur svo Kim í götuna, fær duglegt höfuðhögg og vaknar upp sem svefndrukkin stúlka frá miðöldum, í korsetti með púðrað hár.

Auðvitað sötrar hún svo orkudrykkinn úr kristalsglasi og rankar skyndilega úr rotinu – en súrrealísk stuttmyndin tekur á sig framúrstefnulega mynd undir lokin og eftir situr að lokum sú áleitna spurning, hvar Hype Energy sé eiginlega að finna?

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!