KVENNABLAÐIÐ

Kjúklingur í kókos og lime

Hráefni:

2 msk olía til steikingar

 3 kjúklingabringur

1/2 laukur, saxaður

2 hvítlauksgeirar, rifnir niður

1 msk rifið engifer

1 rauður chilli, skorinn í sneiðar

2 tsk rifinn lime börkur

1 dós kókosmjólk

1 msk fiskisósa

2 msk lime safi

 1 dl saxað ferskt kóríander
Aðferð:
1. Hitið 1 msk olíu á pönnu og steikið kjúklingabringurnar þar til þær verða fallega gylltar, c.a. 2-3 mín á hvorri hlið. Takið kjúklinginn af pönnunni og leggið til hliðar á fat eða disk.
2. Setjið aftur 1 msk af olíu á pönnuna og steikið lauk, hvítlauk og engifer í 4-5 mín. Þá fer chilli, lime börkur, kókosmjólk og fiskisósa á pönnuna. Náið upp suðu og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur.
3. Færið kjúklingabringurnar aftur yfir á pönnuna og látið þær hitna í sósunni í nokkrar mínútur, eða þar til þær eru alveg eldaðar í gegn.
4. Hellið lime safanum saman við og smakkið til með salti. Toppið með ferskum kóríander.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!