KVENNABLAÐIÐ

Pasta í rjómasósu með sveppum, rjómaosti og hvítlauk

Hráefni:

  • 1 pakki tagliatelle eða linguine pasta
  • ½ laukur, saxaður smátt
  • 1 box sveppir, skornir í sneiðar
  • 1 msk ólívuolía
  • 2 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • 1 dl hvítvín
  • 4 dl rjómi
  • 120 gr rjómaostur
  • 1 1/2 dl rifinn parmesan
  • salt og pipar eftir smekk
  • fersk steinselja til skrauts

Aðferð:

1. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkningu. Sigtið vatnið frá en haldið eftir 2 dl af pasta vatninu og leggið til hliðar.

2. Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn og sveppina í um 5 mín. Bætið þá hvítlauknum saman við og steikið áfram í um 1 mín. Hellið þá hvítvíninu á pönnuna og leyfið því að malla þar til það hefur gufað að mestu upp eða í 3-4 mín.

3. Næst fer rjómi og rjómaostur saman við. Látið þetta malla í aðrar 5 mín eða þar til osturinn er vel bráðnaður og sósan farin að þykkna. Hrærið þá pastanu saman við ásamt helmingnum af parmesanostinum. Setjið 1/2 dl af pastavatninu saman við ( meira ef þarf) og blandið öllu vel saman. Kryddið til með salti og pipar og toppið með restinni af parmesanostinum.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!