KVENNABLAÐIÐ

Teriyaki kjúklingur með sesamrasp og hrísgrjónum

Hráefni:

  • 4 msk sesamolía
  • 1/2 dl panko brauðrasp
  • 1/2 dl sesamfræ
  • rauðar chilliflögur
  • 2 msk saxaður vorlaukur
  • 1 dl sojasósa
  • 1/2 dl hunang
  • 3 msk hrísgrjónaedik
  • 1 gúrka, skorin í þunnar sneiðar
  • 500 gr kjúklingabringur eða úrbeinuð læri, skorið í bita
  • 4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • svartur pipar
  • 2 msk maíssterkja
  • 3 cm engiferbútur, rifinn niður
  • 2 rauðar paprikur skornar í strimla
  • soðin hvít hrísgrjón

Aðferð:

1. Hitið 1 msk sesamolíu á pönnu ásamt panko rasp, sesamfræjum og chilliflögum. Leyfið þessu að ristast í 3-4 mín. Takið af pönnunni og leggið á disk. Saltið örlítið og geymið þar til síðar.

2. Blandið saman í skál sojasósu, hunangi, hrísgrjónaediki og 1 msk sesamolíu.

3. Setjið gúrkusneiðarnar í skál og hellið 1/4 af sósunni yfir. Blandið þessu vel saman ásamt smá chilliflögum. Leyfið þessu að standa.

4. Setjið kjúklinginn í skál ásamt maíssterkju og svörtum pipar. Blandið vel saman.

5. Þurrkið pönnuna með eldhúspappír. Hitið næst 2 msk sesamolíu á pönnunni og steikið kjúklinginn í um 5 mín, eða þar til hann verður fallega gylltur. Bætið þá papriku, hvítlauk, engifer á pönnuna og steikið áfram í 2-3 mín. Hellið þá sósunni yfir allt saman og náið upp suðu. Leyfið þessu að malla í um 5 mín eða þar til sósan fer að þykkna.

6. Berið fram í skál með grjónum og toppið með sesam-raspinum og gúrkunum.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!