KVENNABLAÐIÐ

Súper einfaldar hvítlauksristaðar parmesan kartöflur

Hráefni:

  • 1 poki litlar kartöflur, skornar í helminga
  • 3 msk ólívuolía
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 2 hvítlauksrif, rifinn niður
  • ½ tsk laukduft
  • ½ tsk paprika
  • ½ tsk salt
  • ¼ tsk pipar
  • 1 tsk ítalskt krydd
  • 1/2 dl rifinn parmesan

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 190 gráður.

2. Setjið kartöflurnar í stóra skál ásamt ólívuolíu, kryddum, hvítlauk og parmesan. Blandið þessu vel saman.

3. Leggið bökunarpappír á ofnplötu og dreifið úr kartöflunum á plötuna. Bakið í 45-50 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar vel stökkar og gylltar.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!