KVENNABLAÐIÐ

Hvítvíns- og trönuberjakokteill með ferskri myntu og eplasneiðum

Svalandi og fagurbleikur hvítvínskokteill með trönuberja- og eplaívafi. Þessi kokteill er ekki sterkur, svalandi, skemmtilegur og mjög einfaldur í ofanálag. 

Það er hún Betty gamla Crocker sem á heiðurinn að þessum dömukokteil, sem er tilvalinn í vinkonuboðið – en best er að dusta rykið af karöflunni – nú, eða blanda einfaldlega drykkinn í fallega, uppháa könnu og bera svo fram þegar rökkva tekur.

Gleymið ekki ísmolunum í drykkjarkönnuna; trönuberja- og eplasafinn gefur hvítvínskokteilnum undursamlega létt og skemmtilegt yfirbragð.

U P P S K R I F T:

2 bollar (tæpir 5 dl)  vel kælt, þurrt hvítvín (má vera ófáfengt vín)

1/2 bolli (rúmur dl) kældur trönuberjasafi

½ bolli (rúmur dl) kældur eplasafi

1 bolli (tæplega 2.5 dl) sódavatn

ATH: Fallegt betur verið að setja þunnar eplasneiðar í glasið og toppa með ferskum myntulaufum. 

screenshot-www.google.no 2015-08-22 14-44-33

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!