KVENNABLAÐIÐ

Þessar stökku kartöflur munt þú gera aftur og aftur!

Auglýsing

Hráefni:

  • Sjávarsalt
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1 poki kartöflur, afhýddar og skornar í fernt
  • 5 msk ólívuolía
  • handfylli af söxuðu fersku rósmarín
  • 3 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • svartur pipar
  • handfylli af saxaðri flatlaufa steinselju

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu. Setjið vatn í pott og hitið að suðu. Setjið þá 2 msk sjávarsalt, 1/2 tsk matarsóda og kartöflur í pottinn. Látið kartöflurnar malla þar til þær fara að mýkjast.

2. Á meðan kartöflurnar sjóða er ólívuolía hituð á pönnu ásamt hvítlauk og rósmarín þar til hvítlaukurinn fer að gyllast. Sigtið olíuna í stóra skál og setjið hvítlaukinn og rósmarínið til hliðar.

3. Þegar kartöflurnar eru orðnar mjúkar eru vatnið sigtað frá og kartöflurnar settar í skálina með ólívuolíunni. Kryddið þetta til með salti og pipar og blandið vel saman.

4. Dreifið úr kartöflunum á ofnplötuna. Setjið í ofninn í 20 mín. Takið þá spaða og hrærið aðeins í kartöflunum. Bakið áfram í 30-40 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar vel stökkar og fallega gylltar.

5. Setjið þær í stóra skál og blandið hvítlauknum og rósmaríninu saman við. Kryddið til með salti og pipar og toppið með steinselju. Berið fram strax.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!