KVENNABLAÐIÐ

Bragðmikil og safarík úrbeinuð kjúklingalæri með hvítlauk og rósmarín

Auglýsing

Hráefni:

  • 6-7 úrbeinuð kjúklingalæri
  • 1 msk smjör
  • 1 msk olía
  • hvítlauksgeirar
  • 1/2 dl kjúklingasoð
  • 2-3 stilkar ferskt rósmarín

Kryddblanda:

  • 2 msk ljós púðursykur
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 1/2 tsk laukduft
  • 1/2 tsk reykt paprika
  • 1/2 tsk chilliduft
  • 1/4 tsk svartur pipar
  • 1/2 tsk salt

Aðferð:

1. Blandið öllum hráefnum fyrir kryddblönduna saman í skál. Þerrið kjúklingalærin létt með eldhúspappír. Kryddið þau rausnarlega á báðum hliðum með kryddblöndunni. Hitið smjör og olíu á pönnu og steikið hvítlauk í 30 sekúndur.

2. Setjið kjúklingalærin á pönnuna og steikið þau í um 5 mín eða þar til þau fara að taka á sig fallega gylltan lit.

3. Hellið kjúklingasoði á pönnuna ásamt rósmarín stilkum og leyfið þessu að malla stutta stund eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.