KVENNABLAÐIÐ

G R A N O L A: LÍFRÆNT og HEILNÆMT morgunkorn beint úr OFNINUM

Heimabakað morgunkorn er dásamleg viðbót út á jógúrtblöndu með ferskum ávöxtum í upphafi dags. Það skemmtilega við þessa uppskrift er að þú ræður fyllilega hvað þú setur út í blönduna, þú velur öll hráefnin og hefur fullt vald á því hvort um lífrænt ræktuð innihaldsefni er að ræða.

Þess utan er morgunkornið ekki jafn dýrt og pakkinn sem þú kaupir úti í verslun, geymsluþolið getur verið allt að nokkrar vikur ef þú geymir blönduna í loftþéttum umbúðum og vel er hægt að bæta þurrkuðum ávöxtum út í blönduna þegar morgunkornið hefur verið ristað inni í ofni.

Prófaðu að bæta rúsínum, þurrkuðum bláberjum, kirsuberjum, söxuðum apríkósum, þurrkuðum bananasneiðum, niðursneiddum og þurrkuðum eplabitum eða hverjum öðrum þurrkuðum ávöxtum sem þér dettur í hug. Þurrkuðu ávextina setur þú út í morgunkornið þegar blandan hefur kólnað algerlega eftir að hafa verið tekin út úr ofninum, en viðbótin er dásamleg og afar heilnæm leið til að auka á náttúrulegt sætubragð án  þess að setja óhollar viðbætur út í heimalagað morgunkornið.

JJH_granolaingredients-1 (1)

I N N I H A L D S E F N I:

3 bollar gróft haframjöl

1 ½ bolli hnetur og fræ að eigin vali (möndlur, pekanhnetur, graskersfræ, hörfræ o.fl)

½ bolli ferskkreistur eplasafi

½ bolli hlynsýróp (eða hunang)

¼ bolli matarolía

1 msk hreint vanilluþykkni

½ tsk malaður kanel

¼ tsk malaður negull

1 tsk fínmalað sjávarsalt

JJH_granoladone-1

L E I Ð B E I N I N G A R:

#1 – Forhitið bökunarofninn í 160 gráður.

#2 – Blandið saman höfrunum, hnetunum og fræjum í stórri skál.

#3 – Blandið nú saman eplasafanum, hunanginu, olíunni, vanilluþykkni og kryddi í lítinn pott. Kveikið á eldavélinni og hitið varlega við lágan hita, eða þar til hunangið er orðið mjúkt og allt er vel blandað saman. Takið af hellunni og hellið blöndunni yfir hafrana og hneturnar í skálinni. Hrærið öllu vel saman þar til allt er orðið vel blandað.

#4 – Leggið bökunarpappír á ofnplötu og dreifið blöndunni jafnt yfir alla ofnplötuna. Gætið þess að leyfa blöndunni að fá rými – ekki hrúga um of – þar sem morgunkornið þarf rými til að ristast í ofninum. Mögulegt er að þú þurfir tvær ofnplötur til að rista blönduna, en það fer eftir stærð á bökunarpappír, ofnplötu og ofninum sjálfum.

#5 – Bakið í ca. 30 – 40 mínútur inni í ofni en hrærið varlega í morgunblöndunni á ca. 12 – 14 mínútna fresti til að tryggja að morgunblandan hitni jafnt og bakist fallega í ofninum. Þegar morgunblandan er orðin fallega gylltbrún eftir umræddan tíma, er hún tekin út úr ofninum og látin kólna alveg á ofnplötunni.

granola_salgada

Uppskrift // MNN

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!