KVENNABLAÐIÐ

Chilli-hunangs kjúklingur á steiktum hrísgrjónum

Auglýsing

Hráefni:

  • 2 kjúklingabringur skornar í bota
  • 1/2 dl maíssterkja
  • 2 dl vatn
  • 3 msk sriracha sósa
  • 1/2 dl sykur
  • 5 msk sojasósa
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 3 msk hunang
  • 2 msk maíssterkja blönduð í 2 msk vatn
  • 1 chilliflögur

Aðferð:

1. Setjið kjúklinginn í poka ásamt 1/2 dl maíssterkju og hristið vel. Næst fer vatn, sriracha sósa, hunang, soja, sykur og hvítlauksduft í pott og hrært vel í á meðan sósan hitnar að suðu. Bætið maíssterkju-vatns blöndunni saman við til þess að þykkja sósuna.

2. Steikið kjúklinginn á pönnu þar til hann verður fallega gylltur og bætið honum þá saman við sósuna í pottinum. Toppið með chilliflögum

Steikt grjón:

  • 5 dl soðin hrísgrjón, kæld niður
  • 1 gulrót skorin smátt niður
  • 2 vorlaukar skornir niður
  • ½ laukur saxaður
  • 4 msk olía
  • 2 msk sesamolía
  • 1/2 dl sojasósa
  • 3 msk smjör
  • salt og pipar

Aðferð:

1. Hitið 2 msk olíu og 2 msk sesamolíu á pönnu. Steikið hrísrjónin á pönnunni og kryddið með salti og pipar. Þegar grjónin hafa brúnast aðeinseru þau tekin af pönnunni og lögð til hliðar.

2. Notið sömu pönnu og hitið aftur 2 msk olíu og 2 msk sesamolíu. Steikið gulrót, lauk og vorlauk á pönnunni og bætið 2 msk af smjöri á pönnuna. Steikið í um 4-5 mín og kryddið til með salti og pipar. Bætið þá grjónunum saman við og blandið vel saman. Hellið sojasósunni saman við og leyfið þessu að hitna áfram á pönnunni í um 3-4 mín.