KVENNABLAÐIÐ

Þriggja ára stúlka lögð inn á spítala eftir að hafa innbyrt töflu í hrekkavökusælgæti

Þriggja ára stúlka frá Ástralíu er talin hafa innbyrt töflu með hrekkjavökusælgæti sem hún fékk í pokann sinn eftir að hafa safnað því saman með fjölskyldu sinni.

Abby og móðir hennar
Abby og móðir hennar
Auglýsing

Abby Van Der Spuy varð skyndilega „meðvitundarlítil og ráfaði um“ eftir að hafa borðað nammið. Móðir hennar Tara sagði í viðtali við Herald Sun að allt í einu hefði hún tekið eftir því að stúlkan var ekki eins og hún átti að sér að vera.

Samkvæmt fréttunum fann Abby lyfið í plastpoka ásamt namminu sem hún hafði fengið hjá nágrönnunum. Tveir nágrannar hringdu í sjúkrabíl skömmu eftir klukkan átta um kvöldið en þeir sáu ástandið á litlu stúlkunni.

Auglýsing

abby3

Talið er að hún hafi gleypt Seroquel, sem er lyf til að meðhöndla geðsjúkdóma og þunglyndi.

Sjúkraliðar flýttu sér með hana á spítalann þar sem hún er nú í stöðugu ástandi, en hún hefur sofið mikið.

Lögreglan segir í yfirlýsingu að rannsakendum hafi verið sagt að barnið hafi getað innbyrt lyfseðilsskylt lyf og nú er verið að athuga hvernig þetta hafi geta gerst: „Á þessu stigi er ekki trúað að illur ásetningur hafi verið að baki.“

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!