KVENNABLAÐIÐ

Var stöðvaður af lögreglu undir áhrifum kannabisefna og lögreglan gerði stóruppgötvun í kjölfarið

Lögreglan á Suðurlandi varð mjög ágengt eftir að þeir stöðvuðu mann undir áhrifum kannabis, enda fundu þeir mikla lykt af honum. Lögreglan segir svo frá á Facebooksíðu sinni:

„Í gær stöðvuðu lögreglumenn á Selfossi, ökumann fólksbifreiðar, með það að leiðarljósi að kanna með ástand og ökuréttindi hans. Við afskipti, fundu lögreglumenn mikla kannabislykt af manninum og játaði maðurinn neyslu kannabisefna.

Auglýsing

Eitt leiddi af öðru og fóru lögreglumenn með manninn að heimili hans, þar sem þeir fundu sterka kannabislykt. Karlmaðurinn heimilaði leit á heimili sínu og framvísaði um leið nokkru magni af kannabisefnum.

Við nánari skoðun fundu lögreglumenn svo kannabisræktun í kjallara hússins, sem karlmaðurinn gekkst við að eiga.

Auglýsing

Um var að ræða nokkuð vel útbúna aðstöðu til kannabisræktunar þar sem 525 kannabisplöntur á mismundandi ræktunarstigum, voru. Þar vaknaði jafnframt grunur um að rafmagn hefði verið leitt framhjá rafmagnsmæli og var fenginn sérfróður aðili um rafmagn, á staðinn og staðfesti hann að rafmagn, notað til kannabisræktunarinnar, var leitt framhjá mæli.

Málið telst upplýst og á maðurinn von á kæru fyrir akstur undir áhrifum ólöglegra ávana- og fíkniefna, vörslu fíkniefna, framleiðslu kannabsefna, rof á innsigli rafmagnsmælis og þjófnaði á orku.“

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!