KVENNABLAÐIÐ

Jennifer Lopez segir karlmenn yngri en 33 ára „einskis nýta“

Nú hefur myndband frá síðasta sumri með söngkonunni Jennifer Lopez farið á flug vegna ummæla sem hún lét falla í þættinum Tinder’s SwipeSessions.

Í myndböndunum eru stjörnur fengnar til að hjálpa einstaklingi að finna sitt fullkomna Tinder-stefnumót með því að „swipe-a“ til hægri eða vinstri ásamt því að gefa sín ráð í stefnumótum.

Auglýsing

Í myndbandinu hjálpar Jennifer Brooke, kántrísöngkonu, að finna hina einu sönnu ást sem myndi höggva við fyrir hana. Þegar þær eru saman í stefnumótaappinu tekur Jennifer eftir að margir karlmannanna eru undir þrítugu.

Jlo eys úr viskubrunni sínum og segir að karlmenn séu „einskis nýtir“ (e. useless) á þeim aldri.

ljo2

Hún sagði: „Gaurar, þar til þeir eru 33 ára eru þeir í raun einskis nýtir,“

Auglýsing

Jennifer heldur áfram að „swipe-a“ og tekur fyrir 29 ára samfélagsmiðlastjóra sem heitir Maurice til að sanna mál sitt.

Fólk hefur almennt ekki verið ánægt með hin umdeildu stefnimótaráð Jlo. Einn sagði: „Ha! Ímyndið ykkur að karlmaður segði að konur yngri en þrítugar væru einskis nýtar myndu allir ná í heykvíslarnar og kyndlana, ekki satt? Hræsnarar.“

Annar sagði: „Bara að pæla – á hvaða aldri verða konur nýtar? Þetta sýnir bara að konur horfa á karlmenn varðandi hvað þær geta fengið út úr þeim. Þetta snýst allt um stöðu hjá konum.“

Þriðji sagði: „Ef gaur segði að konur undir 33 væru einskis nýtar myndu Sameinuðu þjóðirnar blanda sér í málið og allir yrðu yfir sig hneykslaðir. Nú er þetta bara asnalegur brandari. Talandi um jafnrétti..“

Hér er myndbandið umdeilda:

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!