KVENNABLAÐIÐ

Eru brestir í sambandi „heitasta fanga heims“ og erfingja TopShop?

„Heiti fanginn,“ Jeremy Meeks hefur nú reynt að laga samband sitt við erfingjann Chloe Green. Hann póstaði af því tilefni skilaboðum til hennar á Instagram.

Auglýsing

„Það er ENGIN ÖNNUR sem ég vil eyða restinni af lífinu með“ skrifaði hann með mynd af parinu í faðmlögum.

Chloe hafði verið mynduð þar sem hún gekk fyrir utan íbúð þeirra í Monte-Carlo en þá höfðu sögusagnir komist á kreik að þau væru á barmi sambandsslita.

Auglýsing

Þau lentu í rifrildi á Cavalli klúbbnum í Dubai þar sem Jeremy rauk út og skildi Chloe eftir grátandi. Þau eru foreldrar Jayden sem fæddist þann 29 maí 2018.

Jeremy, Cloe og Jayden
Jeremy, Cloe og Jayden

Jeremy skrifaði einnig: „Þú ert ótrúleg mamma og ég elska þig að EILÍFU…TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ.“

Jeremy Meeks vakti heimsathygli á sínum tíma því hann var svo fallegur. Hann skildi svo við barnsmóður sína, varð fyrirsæta og kynntist Chloe. 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!