KVENNABLAÐIÐ

Harry leitar hjálpar hjá föður sínum vegna dvínandi vinsælda Meghan

Mun Charles Bretaprins koma til Meghan til bjargar og bæta ímynd hennar? Harry Bretaprins hefur miklar áhyggjur af hversu brösuglega Meghan hefur tekist að koma sér inn í fjölskylduna og vill laga það sem miður hefur farið.

Auglýsing

Meghan hefur fengið það orð á sig að vera frekar ósveigjanleg þegar kemur að bæði öðrum fjölskyldumeðlimum sem og aðstoðarfólki. Vill hann reyna að fá drottninguna í lið með sér og kæfa háværar raddir föður Meghan, Thomas Markle, sem og stjúpsystur hennar Samönthu.

Auglýsing

„Harry veit að Charles heldur mikið upp á Meghan en hann er að fá hann til að gera hluti sem geta reynt mikið á þolmörkin,“ segir innanbúðarmaður í höllinni.

„Stóra málið er auðvitað deilur Meghan við Kate, en það verður erfiðara með hverjum deginum þó þær hafi eytt jólunum saman. Charles hefur sagt við Harry að Meghan verði að „byggja brú“ til mágkonu sinnar.“

Charles er að reyna sitt besta að sefa alla reiði og óvild við alla, segir heimildarmaðurinn, „en það er bara visst mikið sem hann getur gert.“

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!