KVENNABLAÐIÐ

Allir krakkar: Rætt við brotaþola kynferðisofbeldis – Myndband

Hver eru mörkin þegar kemur að kynlífi? Þátturinn Allir krakkar verður á dagskrá RÚV í kvöld, 1. nóvember og er umfjöllunarefnið kynferðisleg áreitni og kynferðisofbeldi. Lögð er áhersla á að fræða ungt fólk um samþykki og mörk.

Auglýsing

Samtökin Stígamót koma að gerð þáttarins og tengist það fjáröflunarátaki en verið er að safna fyrir forvarnarstarfi samtakanna.

Auglýsing

Í þættinum verður rætt við brotaþola kynferðisofbeldis í unglingasamböndum, sem og fólk sem starfar með ungu fólki að fræðslu um þessi mikilvægu málefni. Ungmenni eru hvött til að horfa á þáttinn sem og foreldrar og forráðamenn barna og unglinga.

Hér að neðan má sjá brot úr þættinum: 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!