Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir þeim Ísabellu Máney Grétarsdóttur, Andreu Ósk Waagfjörð og Hrafnhildi Malen Lýðsdóttur. Stúlkurnar eru allar á 16. ári og fóru frá heimilum sínum á Selfossi í gærkvöldi.
Auglýsing
Þeir sem búa yfir upplýsingum um ferðir þeirra eða hvar þær halda til eru beðnir um að koma þeim upplýsingum til lögreglu í gegnum síma Neyðarlínu 112 eða með skilaboðum Facebooksíðu Lögreglunnar á Suðurlandi.
Auglýsing