KVENNABLAÐIÐ

Neistar flugu milli Oliviu Newton-John og John Travolta við tökur á Grease

Allir sem hafa séð söngvamyndina Grease (1978) eru hissa á að Olivia Newton-John og John Travolta urðu ekki par eftir tökur á myndinni þar sem þau léku Sandy og Danny.

Auglýsing

Nú hefur Olivia sagt frá því að þau hafi ekki verið að hittast, þrátt fyrir mikið neistaflug milli þeirra við tökur. Talaði hún við Miu Freedman á No Filter hlaðvarpinu og sagði hún að kynferðisleg spenna hefði verið mikil milli hennar og Johns en þau voru bæði í öðrum samböndum: „Við vorum bæði með öðru fólki þegar tökur fóru fram og ég held, virðingarverðast, að það gerðist ekkert. Ég held samt að það hafi verið gott því það viðhélt spennunni og neistanum. Það hefði getað verið hörmulegt ef við hefðum farið að hittast eða eitthvað. Þannig það var alveg eins gott að það gerðist ekki. En við erum enn æðislega góðir vinir.“

Auglýsing

Olivia bætti við að hún elskaði hann á „systurlegan“ hátt.

Leikkonan Kirstie Alley hefur játað að hafa alltaf elskað John og sér eftir að hafa ekki gifst honum!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!