KVENNABLAÐIÐ

Miley Cyrus og Liam Hemsworth „rífast stöðugt“

Miley hefur oft lýst ást sinni á Malibu, sem er borg í grennd við Los Angeles í Kaliforníuríki. Ef þú myndir hinsvegar spyrja unnustann Liam Hemsworth myndi hann segja að Ástralía, heimalandið, væri stóra ástin hans. Parið, sem er trúlofað, ku rífast mikið þessa dagana um hvar þau eigi að búa: „Miley er svo ánægð í Malibu, en Liam vill hefja fjölskyldulíf í Ástralíu,“ segir nafnlaus heimildarmaður í viðtali við In Touch. „Þau rífast stöðugt.“

Auglýsing

Bróðir Liams, Chris Hemswoth og kona hans Elsa Pataky, eru nú um þessar mundir að gera upp hús í Byron Bay, strandarbæ í New South Wales: „Hann sér hversu miklu hamingjusamari bróðir hans er að festa rætur þarna. Foreldrar þeirra og fjölskylda búa þar einnig.“

a mmmi

Auglýsing

Liam er greinilega ekki mikið fyrir glys Hollywood eins og Miley: „Honum líkar ekki að hanga í kringum þetta lið í bransanum, þó Miley líki það,“ segir þessi innanbúðarmaður.

„Miley er hrædd um að verða einmana og einangruð. Hún vill alveg fara í heimsókn en ekki búa þar.“

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!