KVENNABLAÐIÐ

Þú ert líklega móðir ef….

Ert þú móðir? Þá ættirðu að kannast við eitthvað af þessu! Ekki gleyma að deila á mæður í sömu stöðu…

Þú ert líklega móðir ef…

…ef þú felur þig inni á baðherbergi til að geta verið ein smástund.

…ef þú hefur verið í jogginggalla alla helgina.

…ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu (…og þér er alveg sama)

…ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu en að þú fáir ótruflaðan 8 tíma svefn.

…ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í einu.

…ef þín skilgreining á góðum degi er að halda fötunum frá sulli og óhreinindum.

..ef þú þværð barninu í framan með munnvatnsbleyttum þumalfingrinum.

…ef þú gerir ósjálfrátt tvöfaldan hnút á allt sem þú hnýtir.

…ef þér finnst góð lyktin af soðnum gulrótum með eplamauki.

…ef þú ert farin að kaupa morgunkorn með sykurpúðum.

…ef þér tekst að setja ólíkar tegundir matvæla á disk, án þess að nokkrar þeirra snertist.

…ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti, af því að það er það eina sem barnið borðar.

…ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita og leyfir öðrum að borða af disknum þínum.

…ef þú segir setningar eins og: „Ekki setja pastað í nefið á þér…!“

…ef þú telur skrautsykursmolana á hverjum kökubita svo allir fái jafnt.

…ef þú velur veitingastaði eftir gæðum barnamatseðilsins og dótinu sem fylgir með.

…ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi, hefur ekki tíma til að borða (hvað þá að drekka eða fara á klósettið) og samt tekst þér að þyngjast um 5 kíló!

…ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins og: „Ekki skrifa á vegginn!“ „Ekki nota köttinn fyrir fjall!“ „Nei, skrifborðið á ekki að vera í sófanum!“ „Hættu að toga í hárið á systur þinni“ „Bíddu aðeins á meðan ég næ í þráðlausa símann, ég þarf að skipta á barninu/gefa barninu að borða/ finna barnið!!“

…ef þú nærð að hlaupa í gegnum alla íbúðina (og um leið setja barnið í stólinn sinn, hoppa yfir tvö öryggishlið, velta þremur taukörfum, hrasa um leikfang, hundinn og bolta á ganginum) og svara símanum áður en kviknar á símsvaranum. Um leið hefur þú öðlast réttindi til þáttöku í fjölþraut og átt góða möguleika á að vinna gullið!

..ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli, en fyllist skelfingu ef allt er hljótt.

…ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir: „Nei, ekki þegar þú ert í sparifötunum!“

…ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi móður þinnar á þér og syskinum þínum.

…ef þú ert farin að raula Disney-lög yfir uppvaskinu.

…ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum þínum og eyðir svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gengur heima.

…ef þú segir á hverjum degi: „Ég er ekki rétta manneskjan í þetta starf…“ en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við nokkurn annan!

(Höf: óþekktur)

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!