KVENNABLAÐIÐ

BEIKON grjón sem þú býrð til aftur og aftur og aftur….

Þessi réttur er svo einfaldur og góður að það er bara grín. Þú átt eftir að elda þennan aftur og aftur og þetta er ekta dekurmatur á virkum degi. Matur sem lætur þér líða vel…

UPPSKRIFT:

Köld soðin hrísgrjón (upplagt að nota afganga frá deginum áður.)

1 Beikon bréf

Paprika

Laukur

1 matskeið sojasósa

Gulrætur og baunir úr dós

Vorlaukur

1 egg

Steiktu beikonið smátt skorið á pönnunni þar til að það er steikt í gegn en ekki brunnið. Veiðið það af pönnunni og það mesta af olíunni en ekki fleygja henni.

Steikið laukinn smátt skorinn og paprikuna þar til laukurinn gyllist, bætið út í grænmetinu úr dósinni en passið að hella vökvanum af dósargrænmetinu fyrst.

Bætið smá beikonolíu samanvið og steikið allt saman. Takið grænmetið af og bætið smá beikonolíu á pönnuna.

Setjið grjónin á pönnuna og steikið stutta stund, bætið beikoninu og grænmetinu út í og blandið öllu vel saman á pönnunni.

Hrærið saman 2 egg með gaffli, ýtið öllu á pönnunni á annan helminginn og hellið eggjablöndunni útí og hrærið stöðugt í með trésleif þar til eggin skramblast. Blandið saman við grjónin. Setjið sojasósuna saman við. Saxið vorlaukinn niður og skellið smávegis yfir pönnuna. TILBÚIÐ!!!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!