KVENNABLAÐIÐ

Rob Kardashian fluttur í skyndi á sjúkrahús

Rob Kardashian og Blac Chyna eru nýbúin að eignast dótturina Dream eins og Sykur hefur greint frá. Mikil ólga hefur þó verið í sambandi Robs og Blac og í dag var hann fluttur í skyndi á sjúkrahús. Rob þjáist af sykursýki og segja heimildir TMZ að vegna ólgunnar í sambandinu hafi hann farið að borða of mikið og of óhollt. Hefur hann því þyngst ótæpilega og misst stjórn á sykursýkinni. Hann er nú enn á spítalanum þar til læknar ná tökum á ástandinu.

Blac Chyna og Kris Jenner sáust koma í miklum flýti á spítalann en komu þó í sitthvoru lagi. Rob og Chyna búa ekki saman í augnablikinu.

Auglýsing

Ekki er vitað hvers vegna Rob lagðist inn á sjúkrahús þrátt fyrir að baráttan við sykursýkina sé kunn. Hefur því verið fleygt að hann hafi fengið áfall en engin vitneskja er um slíkt á þessari stundu.