KVENNABLAÐIÐ

Mariah Carey eyddi jólunum með nýjum kærasta

Hin 46 ára söngkona var ekki lengi að jafna sig á skilnaðinum við milljarðamæringinn James Packer í október síðastliðnum því hún hefur nú fundið ástina á ný í dansaranum Bryan Tanaka sem er 33 ára. Er sagt að hún sé yfir sig ástfangin: „Hún er mjög hrifin af honum. Honum kemur einkar vel saman við tvíburana hennar, Moroccan og Monroe. Hún keypti handa honum dýrar hönnunargjafir í verslununum í Aspen, þar sem hún eyðir alltaf jólunum. Þau gengu þar um hönd í hönd og voru mjög ástríðufull, alltaf að kela,“ segir heimildarmaður við Entertainment Tonight.

Auglýsing
Parið á hrekkjavökunni
Parið á hrekkjavökunni

Eyddu þau parið ásamt tvíburum Mariuh jólunum í fallegu húsi í Apen, Colorado, Bandaríkjunum. Leigðu þau það á AirBnB og var nægilegt pláss fyrir alla – fimm svefnherbergi, fimm baðherbergi, leikjaherbergi, bíósalur, líkamsræktarstöð og gufuböð.

Á meðan var faðir barnanna, Nick Cannon, á spítala þar sem hann var í meðferð vegna sjúkdóms í stoðvef. Hann dvaldist þar yfir hátíðina og vonast til að komast heim á nýju ári.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!