KVENNABLAÐIÐ

Kim og Kanye í hjónabandsráðgjöf

Þrátt fyrir sögusagnir þess efnis að hjónabandið sé búið hefur stjörnuparið Kim Kardashian og Kanye West ákveðið að fara í hjónabandsráðgjöf – barnanna vegna. Þau hafa sést í sitthvoru lagi án giftingarhringanna og búa ekki á sama stað og sú saga hefur gengið fjöllum hærra að skilnaður sé á næsta leiti.

„Kim sagði mér að: „Þetta snýst ekki um mig, þetta snýst um börnin,““ segir ónafngreindur vinur þeirra hjóna í viðtali við Maie Claire: „Hún vill láta þetta ganga. Hann þarf lengri tíma til að jafna sig og hún vill bíða og sjá hvernig það gengur.“ Þessi sami vinur sagði að þrátt fyrir að Kim muni jafnvel fara frá Kanye elskar hún hann enn og þrátt fyrir allt gangi sambandið þeirra betur. Við vonum það allavega!

Auglýsing

Skötuhjúin sáust í fyrsta sinn opinberlega saman í marga mánuði en þau fóru út að borða í Los Angeles í dag:

kk-aaa

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!