KVENNABLAÐIÐ

Janice Dickinson var að ganga í sitt fjórða hjónaband!

Hún hefur verið kölluð fyrsta ofurfyrirsætan og er nú afskaplega ástfangin og hamingjusöm. Janice gekk að eiga Dr Robert „Rocky“ Gerner um helgina í Beverly Hills. Er Janice sögð í skýjunum yfir þessu nýjasta og vonandi síðasta hjónabandi. Janice segir í viðtali við Entertainment Tonigt að hún sé gersamlega springa úr hamingju: „Þegar Rocky kynnti sig í fyrsta sinn fyrir mér fannst mér eins og ég hefði séð einhyrning, einn sinnar tegundar. Hann er klárasti, besti, fyndnasti og mest spennandi maður sem ég hef nokkurn tíma hitt á lífsleiðinni.“

jd2

Auglýsing

Klæddist Janice kjól frá Jane Brooke í athöfninni og sagði hún að kjóllinn hefði verið fullkominn. Janice sem er 61 árs trúlofaðist Rocky sem er sjötugur í desember árið 2012. Í fyrra fór Rocky í lýtaaðgerðir til að vera upp á sitt besta í athöfninni og kostaði andlitslyftingin um þrjár milljónir isk. „Ég vildi líta eins vel út og hægt er,“ segir hann. „Janice er ofurfyrirsæta.“

jd3

Eins og áður sagði er þetta fjórða hjónaband Janice: Hún giftist tónlistarmanninum Ron Levy á áttunda áratugnum, framleiðandanum Simon Fields árið 1987 og skildi sex árum seinna og svo var hún gift Albert B. Gersten í 12 mánuði árið 1995.

Hér má sjá Janice tala opinskátt um lífernið sem fylgdi fyrirsætuárunum hennar, drykkjuna og eiturlyfin og hvernig henni gekk að vinna með Tyru Banks í raunveruleikaþáttunum Americas Next Top Model:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!